Af hverju hlæjum við
Fyndinn, fræðandi og innblásandi 50-60 mínútna skemmtifyrirlestur um hlátur fyrir allar gerðir hópa!
Fjallað er um þennan dásamlega eiginleika mannfólksins að hlæja og hvað hvað gerist í líkamanum, huganum og í samskiptum okkar við aðra þegar við hlæjum.
Hvaða áhrif hefur góður hlátur á hópavinnu á vinnustað, fjölskyldulíf og daglegt líf, eða þá bara þegar við flissum ein með sjálfum okkur?
Geta dýr hlegið? Er allur hlátur æskilegur? Af hverju er hlátur svona smitandi? Hvaða hláturtegundir eru algengastar og skrítnastar? Og síðast en ekki síst, hvernig hlæjum við oftar og meira?
Finnbogi Þorkell Jónsson er leikari, hláturjógaleiðbeinandi, textasmiður og leiðsögumaður. Hann hefur rekið Gleðismiðjuna síðan 2019 og hefur víðtæka reynslu af því að vinna með hlátur og leikgleði í fjölbreyttu samhengi. Finnbogi hefur flutt fyrirlesturinn hjá fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og í einkasamkvæmum síðan fyrripart árs 2026 og hefur hlotið frábærar viðtökur. Hann stígur nú á stokk með hann í Tjarnarbíói. Listrænn ráðunautur er Þór Tulinius.
Á kómískan og en líka fræðilegan hátt er veitt innsýn í hvernig hlátur getur tengt okkur saman, dregið úr streitu nútímans, aukið vellíðan og jafnvel bætt einbeitingu og afköst. Einnig verður farið yfir einfaldar og áhrifaríkar leiðir til að hlæja meira í daglegu lífi. Fyrirlesturinn á erindi við alla, manninn á götunni sem og stjórnandann í stólnum. Einfaldlega alla þá sem hafa áhuga á gleðinni og hinu mannlega. Þetta er efni sem minnir okkur á mikilvæga, en oft vanmetna, mannlega vídd í samskiptum og samveru og sendir áhorfandann heim mun líklegri til að hlæja og gleðjast oftar og meira!
