Fantasíur

Fantasíur er heillandi, ögrandi og dularfull sýning, innblásin af bókinni Fantasíur í ritstjórn Hildar Sverrisdóttur.

Dansleikhús þar sem dans, leikur og tónlist fléttast saman í örsögum kvenna um langanir, drauma, skömm, sjálfsmynd og það sem býr undir yfirborðinu.

Með húmor, næmni og dirfsku ferðast verkið um það sem varð, það sem aldrei varð og það sem hefði getað orðið.

Listrænt teymi:

Danshöfundur og leikstjóri
Lára Stefánsdóttir

Dansarar og leikarar
Ernesto Camilo Aldazabal Valdes
Íris Ásmundardóttir
Kristín Þorsteinsdóttir
Lára Þorsteinsdóttir
Rósa Guðný Þórsdóttir
Sigurður Edgar Andersen
Vilborg Halldórsdóttir
o.fl.

Búningar og leikmunir
Helga Rún Pálsdóttir

Ljósahönnun
Alfreð Sturla Böðvarsson

Tónlist og hljóð
Stefán Frans Guðnason o.fl.

Frumsýning
Lok mars 2027

Framleiðandi
Pars Pro Toto dansleikhús

Í samstarfi við
Tjarnarbíó