Grýbos - Kemur í Ljós

Platan Kemur í Ljós er frumraun hljómsveitarinnar Grýbos og verður einungis gefin út á CD þangað til annað kemur í ljós. Plötuna verður hægt að nálgast á tónleikunum. Hljómsveitin kemur fram með strengjakvartett með sér í liðsauka.

Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos. Verkefnið hófst sem tilraunir í upptökuveri þar sem var prófað allt frá A til Ö, það þróaðist fljótt í hljómsveit með kraftmiklum hljóðheim. Með þeim í lið slógust Hlynur Sævarsson á bassa, Magnús Már Newman á trommur og Guðjón Steinn á hin ýmsu hljóðfæri

Tónlistin einkennist af stórum og kraftmiklum köflum sem flæða áreynslulaust yfir í mildari ‘’atmó’’ kafla.