Gunnella
Gunnella myndi lýsa sjálfri sér sem hjartahlýrri, sjálfstæðri, duglegri og fyndinni konu. Hún hefur hins vegar ekki hugmynd um hvernig aðrir myndu lýsa henni.
Hún er að læra að prjóna við matarborðið þegar gestur bankar upp á sem gæti breytt lífi hennar.
Leikhópurinn HundraðP kynnir tragikómedíu sem ætti að fá hvern sem er til að skella upp úr, jafnvel klökkna.
Sýningin var unnin í Listaháskóla Íslands.
Höfundur: Katla Þórudóttir Njálsdóttir
Leikstjórn: Killian G.E. Briansson
Leikarar: Aron Már Ólafsson og Katla Þórudóttir Njálsdóttir
Leikmynda-, gerva, og búningahönnun: Katla Þórudóttir Njálsdóttir
Aðstoð við leikmynd: Þóra Pétursdóttir og Sævar Guðmundsson
Lýsing og hljóð: Karla Aníta Kristjánsdóttir
Framleiðandi: Katla Þórudóttir Njálsdóttir
Ljósmyndun: Ágúst Örn B. Wigum
Grafísk hönnun: Ísak Emanuel Glad Róbertsson
Sérstakar þakkir: Aðalbjörg Árnadóttir, Egill Ingibergsson, Úlli og Atli
