Jakob Birgis í Tjarnarbíó
Jakob Birgis snýr aftur á svið með uppistandssýninguna Ósakhæfur.
Í sýningunni fer Jakob yfir lífið og tilveruna á sinn hispurslausa hátt og segir frá ýmsu sem hefði mögulega verið skynsamlegra að halda fyrir sjálfan sig.
Eftir sýningar haustsins heldur Jakob nú áfram í Tjarnarbíó á nýju ári.
2. janúar – Nýársgleði til góðs
Byrjum nýja árið á hlátri og látum gott af okkur leiða!
Laugardaginn 2. janúar verður sama uppistandssýning á dagskrá, en að þessu sinni til styrktar Börnum með krabbamein, styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Allur ágóði af miðasölunni rennur til félagsins.
