Mikið fyrir börn

Sviðslistahópurinn Animato sýnir:

Mikið fyrir börn. 

Bráðum koma blessuð jólin með kökur og kæti, gjafir og glimmer. Grýla hlakkar mikið til, enda eru jólin hátíð barnanna – og hún er mikið fyrir börn. Stekkjastaur langar mest til þess að hafa það náðugt í hellinum um jólin, en Leppur bróðir hans þráir að fara til byggða og setja í skóinn hjá öllum krökkunum. Grýlu finnst báðar þessar hugmyndir út í hött en kannski tekst sonum hennar að leika á hana. Tóta litla bíður spennt eftir fyrsta jólasveininum. Hún er með langan (eiginlega mjög langan) lista yfir gjafirnar sem hún vill fá. Kannski fær hún bara kartöflu til að narta í. Eða verður nartað í hana?

Höfundur: Þórunn Guðmundsdóttir

Leikstjóri: Þórunn Lárusdóttir

Söngvarar: Eggert Reginn Kjartansson, Gunnlaugur Bjarnason, Margrét Björk Daðadóttir og Vera Hjördís Matsdóttir

Leikmynd og búningar: Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir

Jólasöngleikur fyrir alla fjölskylduna. Hæfilega hryllilegur, þjóðlegur og fyndinn.