Rót
„Abuela“ kemur í heimsókn
Hjartnæm og skemmtileg fjölþjóðleg brúðusýning fyrir áhorfendur á ólíkum aldri
Rót er ný, litrík og skemmtileg brúðusýning fyrir áhorfendur á öllum aldri, með fjörugri lifandi tónlist, þar sem lögð er áhersla á miðlun sögunnar í gegnum sjónræna þætti. Hér er varpað fram spurningum varðandi mótun sjálfsmyndar okkar, áhrif uppruna á líf okkar og þörfina fyrir að tilheyra. Sýningin fjallar um ungan dreng sem tilheyrir ólíkum menningarheimum, en hann á íslenskan föður og suður-ameríska móður. Sumar eitt kemur amma drengsins, abuela, í heimsókn til Íslands, og flytur með sér framandi andblæ, söngva, sögur og hefðir frá heimalandi sínu, og drengurinn kynnist sjálfum sér á nýjan hátt.
Sýningin er sköpunarverk listafólks frá ýmsum heimshornum, Paragvæ, Slóvakíu, Bandaríkjunum, Tékklandi, Dóminíska lýðveldinu, Japan, Bretlandi og Íslandi. Þessi fjöruga, hlýlega og nýstárlega sýning á erindi við áhorfendur á ólíkum aldri og af ólíkum uppruna.
BRÚÐULIST – FJÖLMENNING - MENNINGARHEIMAR
Leikhópurinn Handbendi er margverðlaunaður brúðuleikhúshópur sem hefur heimilisfesti á Hvammstanga en ferðast víða um heim með sýningar sínar. Handbendi hlaut Eyrarrósina, viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, árið 2021.
Frumsýning hjá Leikfélagi Akureyrar í apríl og sýningar í Tjarnarbíó í maí, í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík.
Flytjendur: Juraj Hubinák, Sigurður Arent Jónsson, Tessa Rivarola, Rebecca Hidalgo, Viktoría Sigurðardóttir.
eftir Handbendi Brúðuleikhús
-
Leikstjórn og brúðuhreyfingar: Greta Clough
Tónlist: Paul Mosely
Sviðshreyfingar: Chantelle Carey
Leikmynd, leikmunir og búningar: Sigríður Sunna Reynisdóttir og Auður Ösp Guðmundsdóttir
Brúðuhönnun og smíði: Aya Nakamura og Katanari
Lýsing: Friðþjófur Þorsteinsson
Brúðleikari og dramatúrg: Juraj Hubinák
Framleiðandi: Martin L. Sörensen
-
Handbendi í samstarfi við Þjóðleikhúsið, Leikfélag Akureyrar og Listahátíð í Reykjavík.
