Sirkusmolar

Brakandi fersk nýsirkussýning þar sem hver moli kemur á óvart

Sirkuslistafélagið Hringleikur snýr aftur með aðra útgáfu af Sirkusmolum, stútfulla af nýjum atriðum! Í gegnum tungumál sirkuslistanna leikur listafólkið sér með myndir af mismögulegum veruleikum og hughrifum ólíkra framtíða. 

Sýningaröðin Sirkusmolar veitir innsýn í það ferskasta úr íslensku sirkuslífi og veitir hérlendu sirkuslistafólki tækfæri til að setja á svið hugmyndir sínar og þróa nýtt efni og atriði - svo hér má sjá ferskustu kræsingar sirkusheimsins! Hvort sem er ljóðræna loftfimleika á heimsmælikvarða, skens og glens, ótrúlegan styrk eða þá bara eitthvað mjög skrítið - þá er aldrei að vita hvað kemur næst upp úr pokanum. 

Sýningin hentar áhorfendum á öllum aldri og byggir takmarkað á töluðu máli.

Sirkuslistafólk - flytjendur og höfundar atriða: Thomas Burke, Bryndís Torfadóttir, Urður Ýrr Brynjólfsdóttir, Álfrún Haraldsdóttir, Nick Candy, Alejandro Bencomo, Sophie Kass, Sally Cowdin, Jón Sigurður Gunnarsson

Listrænn stjórnandi: Lauren Charnow

Framleiðsla: Eyrún Ævarsdóttir og Thomas Burke