Þú átt leik
ÞÚ ÁTT LEIK
Þátttökuverk fyrir börn og fullorðna
Klukk! Þú ert’ann!
Þú átt leik er afslappað þátttökuverk sem setur leik barna í hásæti og veltir upp spurningum um eðli sviðslista.
Hvernig er nú með þessa byggingu, hver má leika í LEIKhúsinu og hver horfir á? Pant ver’ann…og svo skiptumst við á! Væri gott að fela sig í myrkrinu og kveikja á ímyndunaraflinu? „Segðu hóóóó“! Er einhver sem finnur mann í þessum leik eða finnur maður sig sjálfur?
Í þessu nýja sviðsverki er kafað ofan í leikjamenningu barna þvert á kynslóðir. Viðtöl við börn í dag fléttast saman við minningar fullorðinna af sínum leikjum sem börn. Sumir leikir finnast þvert á heimsálfur, aðrir varpa skýru ljósi á samfélagið sem þeir spretta úr. Hvað segja leikir dagsins í dag um samfélagið okkar? Hverjar eru reglurnar og væri hægt að breyta þeim?
Einn, tveir og nú og það varst þú!
Höfundar: Aude Busson, Sigríður Sunna Reynisdóttir, Embla Vigfúsdóttir og Björn Kristjánsson.
Framleiðandi: Ragnheiður Maísól Sturludóttir, MurMur Productions.
