ÁST – ástarsaga sögð af kór
ÁST er nýtt íslenskt kórverk sem tekst á við ástina í öllum sínum myndum. Fjölskyldubönd, áföll, erfðir, hinseginleiki og allar hliðar ástarinnar, speglaðar í þekktum dægurlögum.
VOX Rangárþing er fjölmenningarlegur kór. Kórfélagar koma frá fleiri en tíu löndum. Hvert og eitt hefur ólíkan bakgrunn, menningu og reynsluheim.
Í ÁST eru raunverulegar og sannar sögur kórsins settar á svið. Kórfélagar segja sínar eigin sögur og sögur hvers annars. Tónlistin styður og sameinar flytjendur og áhorfendur.
Leikstjórn: Gábor Tengely T
ónlistarstjóri og Kórstjóri: Arilíus Marselínuson
Tónlistarráðgjafi: Sandra Rún Jónsdóttir
Listrænn stjórnandi: Harpa Rún Kristjánsdóttir
Flytjendur: VOX Rangárþing
