Look at the music

Í tónleikhúsverkinu ,,Look at the music” verður kynnt nýstárleg og aðgengileg leið til að upplifa tónlist.

Upplifun heyrnarskerðingar og ljóð á táknmáli er grunnurinn í verkinu og tónlistin og kóreógrafían samin í kringum hana. Leikhópurinn skapar hér magnað tónleikhúsverk sem er aðgengilegt heyrandi og þeim sem ekki heyra. Aðeins verða fjórar sýningar af þessu verki sem er hluti af óperudögum í október.