Hvað ef sósan klikkar?

Kæri áhorfandi, fáðu þér sæti á fremsta bekk og vertu vitni að hinum stórkostlega matreiðsluþætti, Hvað ef sósan klikkar? Þar sem hin stórglæsilega Gunnella Hólmarsdóttir ætlar að matreiða fyrir okkur í beinni útsendingu, þar sem allt getur gerst! En hvernig er þessi matreiðsluþáttur frábrugðin öðrum? Í þessum þætti þarf Gunnella að stýra upptöku, skemmta áhorfendum, sjá um auglýsingar (spons) og elda allan matinn frá grunni og það með klukkuna tifandi yfir sér. Nær hún að höndla hitann? Eða þarf hún að fara úr eldhúsinu?

Aðstandendur: Gunnella Hólmarsdóttir, leikari. Andrés Þór Þorvarðarson, tónlistarstjórn og tónskáld.